Sendingar & Skil
Allar pantanir eru sendar með Dropp á þann afhendingarstað sem valinn er við greiðslu.
Sendingarkostnaður og áætlaður afhendingartími koma fram við greiðslu áður en gengið er frá pöntun. Þegar pöntunin hefur verið send færðu upplýsingar um sendinguna og getur fylgst með henni eftir því sem við á.
Við leggjum okkur fram um að afgreiða pantanir eins fljótt og auðið er. Áætlaður afgreiðslutími eru 1-3 virkir dagar.
Skil
Þú hefur 14 daga frá því að þú tekur við pöntuninni til að tilkynna okkur að þú viljir skila vöru.
Sendu okkur tölvupóst á motherscloset@motherscloset.shop með nafni, pöntunarnúmeri og upplýsingum um hvaða vöru þú vilt skila.
Við komum skilamiða frá Dropp til þín og getur þú notað hann þér að kostnaðarlausu til að senda vöruna til baka. Þú getur einnig valið aðra sendingarleið, en þá berð þú sjálf/ur kostnað af sendingunni.
Eftir að þú hefur tilkynnt um skil skal varan send til baka eins fljótt og auðið er og eigi síðar en 14 dögum frá tilkynningu.
Þegar þú mátar skónna
Þar sem hvert par hjá Mother's Closet er einstakt biðjum við þig um að fara sérstaklega vel með skóna á meðan þú ákveður hvort þeir verði eftir hjá þér.
Skó skal aðeins máta innandyra á hreinu og mjúku undirlagi. Ekki skal ganga á þeim utandyra eða nota þá þannig að þeir fái á sig slit, óhreinindi, rispur, lykt eða önnur ummerki um notkun.
Skila skal vörunni í sama ástandi og hún var við móttöku og, eftir því sem unnt er, með öllum merkimiðum, fylgihlutum og umbúðum sem henni fylgdu.
Meðhöndlun vörunnar umfram það sem nauðsynlegt er til að skoða hana og máta getur haft áhrif á fjárhæð endurgreiðslu í samræmi við gildandi lög.
Endurgreiðsla
Þegar skilavaran hefur borist okkur og verið yfirfarin verður endurgreiðsla framkvæmd á sama greiðslumáta og notaður var við kaupin, nema annað hafi verið sérstaklega samþykkt.
Endurgreiðsla getur tekið nokkra virka daga að birtast eftir að hún hefur verið framkvæmd, eftir greiðslumáta og greiðsluþjónustu.
Ef þú fékkst ranga vöru eða telur að vara sé gölluð skaltu hafa samband við okkur á motherscloset@motherscloset.shop og við aðstoðum þig.
Nánari upplýsingar um rétt til að falla frá kaupum og skilmála skila má finna í viðskiptaskilmálum Mother's Closet.