Skilmálar
1. Vörurnar og ástand þeirra.
Verslunin selur einkum notaða hælaskó. Vörurnar eru því ekki nýjar nema annað sé sérstaklega tekið fram í vörulýsingu.
Vintage-vörur geta borið eðlileg merki um aldur og fyrri notkun, svo sem rispur, slit, litabreytingar, eða önnur ummerki. Leitast er við að lýsa ástandi hverrar vöru af nákvæmni.
Eðlileg ummerki um aldur og notkun, sem koma fram í vörulýsingu eða á myndum og kaupandi vissi eða má vita um kaupin, teljast ekki galli. Almennur fyrirvari um að vara sé notuð eða seld í því ástandi sem hún er takmarkar þó ekki lögbundin réttindi neytanda ef ástand vörunnar er verra en hann hafði ástæðu til að ætla.
Flest eintök eru einstök og aðeins til í einu pari. Því getur verið ómögulegt að útvega samskonar vöru ef upp kemur galli eða kaupandi óskar eftir skiptum.
2. Stærðir
Stærðamerkingar vintage-skópara geta verið frábrugnar nútímastærðum og geta einnig verið mismunandi eftir framleiðendum og framleiðsluárum.
Upplýsingar um stærðir eru veittar eftir bestu vitund. Mælingar eru áætlaðar og minni háttar frávik geta komið fyrir. Kaupandi ber ábyrgð á að kynna sér mælingar og vörulýsingu áður en gengið er frá kaupum.
Ef kaupandi þarf frekari upplýsingar um stærð eða snið er hægt að hafa samband við verslunina með tölvupóst á motherscloset@motherscloset.shop.
3. Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður er ekki innifalinn í vöruverði nema annað sé tekið fram. Heildarverð, þar á meðal sendingarkostnaður og annar viðbótarkostnaður, kemur fram áður en pöntun er staðfest.
Verslunin áskilur sér rétt til að leiðrétta augljósar innsláttar- eða verðvillur. Hafi rangt verð verið birt verður haft sambad við kaupanda áður en pöntun er afgreidd og honum gefinn kostur á að staðfesta kaupin á réttu verði eða hætta við pöntunina og fá greitt að fullu til baka.
4. Pöntun og staðfesing
Pöntun telst móttekin þegar kaupandi fær pöntunarstaðfestingu í tölvupóst.
Ef sama einstaka vara selst oftar en einu sinni vegna tæknilegra mistaka gengur sú pöntun fyrir sem fyrst var staðfest. Aðrar greiðslur verða endurgreiddar án ástæðulauss dráttar.
5. Afhending
Upplýsingar um afhendingarmáta og sendingarkostnað koma fram í greiðsluferlinu. AfhendingarNmi getur lengst vegna helgidaga, veðurs, álags hjá flutningsaðila eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna.
Kaupandi ber ábyrgð á að gefa upp rétt nafn, heimilisfang, símanúmer og aðrar nauðsynlegar afhendingarupplýsingar. Kostnaður sem hlýst af röngum eða ófullnægjandi upplýsingum getur fallið á kaupanda, að því marki sem lög heimila.
6. Réttur til að falla frá kaupum
Kaupandi sem telst neytandi hefur 14 daga til að falla frá kaupum án þess að tilgreina ástæðu.
Fresturinn hefst þegar kaupandi, eða þriðji aðili sem hann hefur tilgreint, tekur vöruna í sína vörslu. Ef fleiri vörur úr sömu pöntun eru afhentar sitt í hvoru lagi hefst fresturinn þegar síðasta varan er móttekin.
Til að nýta réttinn skal kaupandi senda ótvíræða tilkynningu áður en fresturinn rennur út á motherscloset@motherscloset.shop. Æskilegt er að fram komi nafn kaupanda, pöntunarnúmer og hvaða vöru er verið að skila.
Ef tilkynning hefur verið send skal kaupandi endursenda vöruna án ástæðulauss dráttar og eigi síðar en 14 dögum eftir að tilkynning var send.
7. Ástand skilavöru
Kaupanda er heimilt að skoða og máta vöruna með þeim hætt sem nauðsynlegur er til að staðfesta eiginleika hennar, einkenni, stærð og virkni.
Skó skal aðeins máta innandyra, á hreinu og mjúku undirlagi. Ekki skal ganga á skónum utandyra eða nota þá við aðstæður sem geta valdið sliti, óhreinindum, rispum, lykt eða öðrum ummerkjum um notkun.
Vöru skal, eftir því sem unnt er, skila með öllum merkimiðum, fylgihlutum og upprunalegum umbúðum sem fylgdu henni.
8. Kostnaður og framkvæmd skila
Skilamiði frá Dropp er útvegaður eftir að skil hafa verið skráð og getur kaupandi nýtt hann sér að kostnaðarlausu við endursendingu vöru.
Kaupanda er ekki skylt að nýta meðfylgjandi skilamiða og getur valið aðra leið til að endursenda vöruna. Velji kaupandi aðra sendingarleið ber hann sjálfur kostnað af henni.
Vöru skal pakka á öruggan hátt áður en hún er send til baka.
9. Útsöluvörur
Útsöluvörum fæst ekki skilað og þær fást ekki endurgreiddar.
10. Persónuupplýsingar
Verslunin vinnur persónuupplýsingar sem eru nauðsynlegar til að taka við greiðslu, afgreiða og afhenda pantanir, annast bókhald, svara fyrirspurnum og uppfylla lagaskyldur.
Kaupandi er ekki sjálfkrafa skráður á markaðspóstlista við kaup. Markaðsefni er aðeins sent á grundvelli fullnægjandi heimildar, svo sem sérstaks samþykkis. Hægt er að afturkalla samþykki eða afskrá sig af póstlista hvenær sem er með afskráningartengli.
11. Hugverkaréttindi
Allt efni á vefsíðu verslunarinnar, þar á meðal ljósmyndir, textar, vörulýsingar, vörumerki og grafískt efni, er eign verslunarinnar eða notað með heimild rétthafa.
Óheimilt er að afrita, birta, dreifa eða nota efnið í atvinnuskyni án skriflegs samþykkis rétthafa.
12. Breytingar á skilmálum
Verslunin getur breytt skilmálum vegna breytinga á starfsemi, lögum eða öðrum málefnalegum ástæðum. Sú útgáfa skilmálanna sem var aðgengileg þegar pöntun var gerð gildir um viðkomandi kaup.